30.04.1984
Neðri deild: 77. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4983 í B-deild Alþingistíðinda. (4415)

40. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Sem 1. flm. þess frv., sem hér er verið að mæla fyrir breytingu á og samþykkt brtt., vil ég lýsa yfir fyrir mína hönd að mér finnst hér vera náð fram sanngjörnum áfanga í þessu máli. Ég leyfi mér að þakka hv. nefnd deildarinnar fyrir að hafa náð samstöðu um þessa breytingu. Ég mun greiða henni atkv.