30.04.1984
Neðri deild: 77. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5004 í B-deild Alþingistíðinda. (4425)

240. mál, ábyrgð á láni fyrir Arnarflug

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. það sem ég mæli hér fyrir á þskj. 424 um heimild fyrir fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán fyrir Arnarflug hf., var lagt fram í Ed. og hefur hlotið eðlilega meðferð þar en er hér til 1. umr. í þessari hv. deild. Ég sé ekki ástæðu til að endurflytja framsöguræðu mína þar sem ég vil ekki lengja þennan fund en legg til að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr. að lokinni þessari umr.