02.05.1984
Efri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5032 í B-deild Alþingistíðinda. (4452)

256. mál, hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Lögin um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sem tóku gildi 1. ágúst 1982, kveða auk annars á um heilbrigðis- og hollustuháttaeftirlit á vegum sveitarfélaganna í landinu. Í þessum lögum eru lagðar miklu ríkari skyldur á sveitarfélögin til að sinna þessu eftirliti en áður hefur verið og eru öll sveitarfélög landsins í reynd eftirlitsskyld og undir eftirliti heilbrigðisfulltrúa. Samkv. áður gildandi lögum var einungis skylt að ráða heilbrigðisfulltrúa í fullt starf á stöðum með 10 þúsund íbúa eða fleiri og í kaupstöðum með færri en 10 þús. íbúa og í kauptúnshreppi með yfir 800 íbúa í hluta af starfi. Að öðru leyti fóru heilbrigðisnefndir sveitarfélaga með eftirlitið og því var kostnaður við það í lágmarki. Þessi breytta skipan hefur í för með sér aukin fjárútlát sveitarfélaganna, sérstaklega þeirra sem ekki bar skylda til að hafa eftirlit þetta áður með höndum. Engar sérstakar tekjur eru þá ætlaðar til að mæta þessum aukna kostnaði og reynslan hefur sýnt að erfiðleikum er bundið að fá sveitarfélögin til að sinna þessari lögboðnu skyldu og er borið af þeirra hendi við fjárskorti.

Samkv. gildandi lögum er landinu skipt niður í ellefu heilbrigðiseftirlitssvæði og tekur eftirlitssvæðaskipan tillit til kjördæmaskipunar að verulegu leyti. Það er gert ráð fyrir að ekki færri en einn heilbrigðisfulltrúi starfi á hverju eftirlitssvæði og ekki komi fleiri en 10 þúsund manns að jafnaði á hvern heilbrigðisfulltrúa. Það er samdóma álit allra þeirra er við þessi mál fást, ekki síst heilbrigðisfulltrúa sveitarfélaganna, að það sem einkum standi starfinu fyrir þrifum sé að sveitarfélögin treysti sér ekki til að standa undir eftirlitinu, en það hefur numið um 60 til 70 kr. á mann á ári, ef tekið er mið af þeim svæðum þar sem eftirlitið er framkvæmt samkv. lögum.

Í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við það þegar lagðar eru ákveðnar skyldur í þessu tilviki á sveitarfélögin til að hafa með höndum eftirlit með eftirlitsskyldri starfsemi að sú starfsemi standi að verulegum hluta undir eftirliti. Sú stefna hefur verið mótuð í nágrannalöndum og nú síðast í Noregi og Svíþjóð og er þá tekið mið af því að eftirlitsskyld starfsemi beri a. m. k. helming kostnaðar við eftirlitið og eru þá tekin sérstök eftirlitsgjöld af þessari starfsemi. Með hliðsjón af þeirri reynslu sem fengist hefur af framkvæmd laganna um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, svo og þeir:i tregðu sem viss sveitarfélög hafa sýnt til að framfylgja lögunum vegna þess að fjármunir eru ekki fyrir hendi, telur heilbr.- og trmrn., að höfðu samráði við stjórn Hollustuverndar ríkisins, rétt að reyna að freista þess að fá inn í lögin heimildir fyrir svæðisnefndir heilbrigðiseftirlits til gjaldtöku af eftirlitsskyldri starfsemi sem kveðið er á um í 2. gr. laganna. Hér er sem sagt eingöngu lögð til heimild, þannig að lög standi ekki gegn slíkri innheimtu. Það er vert að veki athygli á því að lagt er til að svæðisnefndum verði fengin þessi heimild, en ekki sveitarstjórnum, og er það gert til að tryggja að gjald þetta komi eftirlitinu milliliðalaust til góða.

Í frv. þessu er lögð til önnur veigamikil breyting, en hún varðar starfsemi Hollustuverndar ríkisins. Stofnuninni er skipt í þrjár deildir, heilbrigðiseftirlit, rannsóknastofu og mengunarvarnir, og hefur hver deild sinn forstöðumann. Mengunarvörnum er m. a. ætlað að sjá um geislavarnaeftirlit í samræmi við lög frá 1962 um ráðstöfun gegn jónandi geislum, þ. e. þá starfsemi sem Geislavarnir ríkisins áður önnuðust. Reynslan sýndi að þetta fyrirkomulag hentar ekki. Stjórn stofnunarinnar gerði þegar á miðju ári 1982 sérstaka samþykki um þennan þátt vegna sérstöðu hans með það fyrir augum að hann yrði rekinn sem sjálfstæðastur og var ráðinn sérstakur deildareðlisfræðingur til að annast þessa starfsemi. Auk þessarar sérstöðu má benda á að gert er ráð fyrir samkv. áður nefndum lögum frá 1962 að innheimt séu eftirlitsgjöld varðandi geislavarnaeftirlitið og að þessi gjöld eigi að standa undir eftirlitinu og renna til þess. Veruleg vandkvæði eru á slíku þegar starfsemi er aðeins hluti af starfsemi stærri deildar. Vegna þess er hér lagt til að gera geislavarnir sjálfstæða deild innan stofnunarinnar og á þann hátt verður sú breyting gerð að í stað þriggja deilda verða þær fjórar að þessu leyti. Óskir hafa komið fram um að gera geislavarnaeftirlitið að algerlega sjálfstæðri stofnun, en við í rn. töldum réttara að stíga ekki stærra skref í þessum efnum en gert er ráð fyrir í frv.

Í þessu frv. er einnig lögð til önnur breyting, en hún er að heimila stofnuninni að taka gjöld vegna veittrar þjónustu og vegna sérhæfðra eftirlitsmanna. Sú þjónusta sem hér um ræðir er fyrst og fremst rannsóknir á matvælum, þar með talið neysluvatn fyrir heilbrigðisnefnd sveitarfélaganna. Sem dæmi um sérhæft eftirlit má nefna eftirlit með mengunarvarnabúnaði við verksmiðjur landsins, væntanlegt innflutningseftirlit með matvælum og öðrum nauðsynjavörum.

Aðrar breytingar sem lagðar eru til á lögunum snerta örfá atriði sem rn. telur að betur mættu fara í lögum að fenginni reynslu.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta frv. Lögin gerðu ráð fyrir endurskoðun innan ákveðins árabils, en það var samhljóða álit þessara aðila allra að þessar breytingar séu nauðsynlegar. Frv. hefur farið í gegnum Nd. og stóðu allir nm. nema einn að þessari breytingu. Sérstaða þessa eina nm. var sú, að það ætti að bíða eftir heildarendurskoðun allrar löggjafarinnar. Af þeim ástæðum sem ég hef rakið hér tel ég rétt að þetta frv. nái fram að ganga til þess m. a. að uppfylla ákveðin tillekin skilyrði laganna um samræmt heilbrigðiseftirlit í landinu öllu.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn.