03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5152 í B-deild Alþingistíðinda. (4528)

98. mál, aðgerðir gegn skattsvikum

Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur fjallað um till. til þál. um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum. N. hefur haft málið til umfjöllunar og fengið umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Skattrannsóknastjóra, ríkisskattstjóra, Lögmannafélagi Íslands, Félagi löggiltra endurskoðenda og fjmrn.

N. mælir með samþykkt till. með brtt. sem flutt er á sérstöku þskj.

Þorsteinn Pálsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins. Ég vil, með leyfi forseta, lesa brtt. eins og hún kemur frá allshn.

Tillgr. orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstj. tafarlausa framkvæmd eftirtalinna verkefna í þeim tilgangi að draga úr skattsvikum og gera alla skattheimtu ríkissjóðs skilvirkari og hraðvirkari en nú er:

1. Að endurskoða lög um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o. fl., nr. 74/1972, með síðari breytingum, svo og lög um meðferð opinberra mála, nr. 73/1973, með síðari breytingum, í þeim tilgangi að stofna sérdeild við sakadóm Reykjavíkur sem fengi m. a. eftirtalin afbrot til meðferðar: skattsvik, bókhaldsbrot, gjaldeyrisbrot, faktúrufalsanir, verðlagsbrot og fleiri skyld brot. Einnig skal fjölgað sérhæfðum starfsmönnum hjá embætti saksóknara og efla starfsemi Rannsóknarlögreglu ríkisins í þessum málaflokkum.

2. Að beita í auknum mæli sjálfvirkum sektarákvæðum og hækkuðum sektum.

3. Að undirbúa nauðsynlegar breytingar á bókhaldslögum, nr. 51/1968, og reglugerð þar að lútandi, svo og lögum nr. 75/1981, um tekju- og eignarskatt, með síðari breytingum, auk framtalsreglna, sem tryggi ítarlegri og samræmdari sundurliðun á reikningsliðum fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri með skýrari og fjölþættari upplýsingum en nú er fyrir skattayfirvöld. Sérstaklega verði endurskoðaðir frádráttarliðir af tekjum, svo sem risnukostnaður, bifreiðafríðindi, enn fremur launamat o. fl.

4. Að láta tafarlaust fara fram gagngera endurskoðun á fyrirkomulagi söluskattskerfisins með það að markmiði að koma á skilvísara eftirliti með innheimtu söluskatts. Heimild sú sem er í 17. gr. laga um söluskatt til að fylgjast með fjármagnsinnstreymi í fyrirtækjum verði notuð þar sem því verður við komið. Athugað verði einnig hvort hægt sé að fá betri skil með því að fækka undanþágum og lækka þar með söluskatt.

5. Að beita sér fyrir aukinni hagræðingu og tölvuvæðingu við upplýsingaöflun og úrvinnslu skattframfala og fylgiskjala.

6. Að fjölgað verði sérhæfðu starfsliði við embætti skattrannsóknastjóra svo og á skattstofum. Veitt verði á fjárlögum nauðsynlegt fjármagn til að stórauka allt skatteftirlit og rannsókn skattsvika, sbr. 1.–5. tölulið. Að því verði stefnt að hægt sé að taka til ítarlegrar rannsóknar a. m. k. 10% skattframtala fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri“.

Það fer ekki milli mála að með þessari till. er lagt til að skatteftirlit, bæði með tekjuskatti og söluskatti, verði mun virkara en það er nú.