07.11.1983
Efri deild: 12. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (453)

55. mál, tollheimta og tolleftirlit

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt að verða við tilmælum hv. þm. Ragnars Arnalds, og ég sem formaður fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar lýsi því hér með yfir að það verður haft samband við Tollvarðafélagið og málið skoðað gaumgæfilega.