03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5166 í B-deild Alþingistíðinda. (4542)

52. mál, vistunarvandi öryrkja

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að það er enginn ágreiningur á stjórnarheimilinu um afgreiðstu þessa máls. Enginn er „visst próblem“ lengur. Ríkisstj. er hjartanlega einhuga um að vandi innan við 20 Íslendinga, sem verst hafa orðið úti af völdum slysa eða annarra áfalla, verði ekki leystur. Um það er enginn ágreiningur. Þetta harma ég og ég segi nei.