03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5167 í B-deild Alþingistíðinda. (4544)

169. mál, umfang skattsvika

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég sé fyllstu ástæðu til sem 1. flm. þessarar þáltill. sem hér er til umr., svo og þeirrar sem samþykkt var fyrr á þessum fundi um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum, að þakka meðnefndarmönnum mínum í allshn. fyrir þá góðu samstöðu sem var um framgang þessara tveggja mála í n. Allt frá upphafi að bæði þessi mál komu fyrir n. kom fram eindreginn vilji allra nm. að afgreiða þessi mál og mikill skilningur á nauðsyn þess að gera átak í þessu máli. Á báðum þessum till. hafa verið gerðar nokkrar breytingar sem full samstaða var um í n. Ég ítreka þakklæti mitt og vona að þessar till. verði til þess að við megum stíga skref í þá átt að uppræta skattsvik hér á landi.