03.05.1984
Efri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5170 í B-deild Alþingistíðinda. (4553)

25. mál, lántaka Áburðarverksmiðju ríkisins

Eiður Guðnason:

Forseti. Ég vildi aðeins beina þeirri fsp. til hæstv. fjmrh. eða hæstv. landbrh. hvort nú sé á döfinni eða fyrirhuguð einhver sérstök fyrirgreiðsla til Áburðarverksmiðjunnar eða niðurgreiðsla á áburðarverði nú á þessu vori, hvort á að verja enn auknu fjármagni úr ríkissjóði til þessara hluta nú um þessar mundir. Ég vildi aðeins óska eftir svari við því.