03.05.1984
Efri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5190 í B-deild Alþingistíðinda. (4593)

317. mál, tollskrá

Frsm. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Tilgangur þessa frv. er að lagfæra hlut þess fólks sem býr við fötlun á svo háu stigi að það á erfitt með að fara ferða sinna án farartækja. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um málið og leggur hún einróma til að frv. verði samþ. óbreytt.