04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5368 í B-deild Alþingistíðinda. (4668)

123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Í þessari brtt. hefur misritast „49. gr.“ í staðinn fyrir 57. gr. og í brtt. við 47. gr. er talað um „að ákveða“ byggingarkostnað, en á að vera „að gera upp“ byggingarkostnað. Vill hæstv. forseti að ég dragi till. til baka eða er hægt að leiðrétta það úr forsetastól? (Forseti: Ég mundi nú fara fram á það að þessar brtt. yrðu teknar aftur.)