07.05.1984
Neðri deild: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5448 í B-deild Alþingistíðinda. (4738)
24. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 120 frá 31. sept. 1977, um tollskrá o. fl., með síðari breytingum. Frv. þetta var fyrst tekið til umr. í hv. Ed. 19. okt. s. l. og er til staðfestingar á brbl. þeim sem sett voru 28. júní s. l. um breytingu á lögum nr. 120 frá 1976, um tollskrá o. fl.
Tollalækkanir þær, sem felast í brbl., taka einkum til búsáhalda og heimilistækja ýmiss konar, en á vörum þessum voru tollar almennt lækkaðir um helming eða úr 80% í 40%. Þessi stórfellda lækkun tolla, sem leiddi jafnframt óbeint til lækkunar söluskatts, hafði í för með sér lækkun smásöluverðs um nær fjórðung eða 22%.
Ekki þarf að hafa mörg orð um lækkun sem þessa á gjöldum af heimilistækjum. Ljóst er að hún felur í sér verulegar hagsbætur fyrir heimilin í landinu, en er þó ekki hvað síst búbót fyrir yngri kynslóðina sem í framtíðinni hyggur á stofnun heimilis og þarf að verja stórum hluta launa sinna til kaupa á nauðsynlegum heimilistækjum.
Jafnframt tollalækkunum á heimilistækjum og búsáhöldum voru tollar lækkaðir úr allt að 70% í 40% á ýmsum matvörum. Lækkun þessi leiddi til lækkunar smásöluverðs á bilinu 6–22%.
Auk nefndra vara var tollur almennt felldur niður af gleraugum og heyrnartækjum, en fyrir setningu brbl. var aðeins heimilt í undantekningartilfellum að fella niður tolla á þessum mikilvægu hjálpartækjum.
Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi ekki fleiri orð um þetta frv. til staðfestingar á brbl. þeim sem ég gat um og legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. að loknum þessum umr.