09.05.1984
Neðri deild: 82. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5579 í B-deild Alþingistíðinda. (4860)

213. mál, sala jarðarinnar Þjóðólfshaga

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá Ed. og var samstaða um málið þar. Landbn. hefur fjallað um málið og eins og sést á þskj. 780 samþykkir hún samhljóða að mæla með að frv. verði samþykkt óbreytt.

Jón Baldvin Hannibalsson og Halldór Blöndal voru fjarstaddir við afgreiðslu málsins.