09.05.1984
Neðri deild: 83. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5591 í B-deild Alþingistíðinda. (4872)

82. mál, Ríkismat sjávarafurða

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins vísa til þeirrar umsagnar frá fjárlaga- og hagsýslustofnun, sem ég fór fram á á sínum tíma skv. ákvæðum í lögum. Þessi umsögn liggur fyrir og þar kemur fram að gert er ráð fyrir því að breytingar þessar leiði til sparnaðar. Hversu langan tíma það tekur get ég ekki sagt fyrir um, en helsta niðurstaða fjárlaga- og hagsýslustofnunar var sú, að breytingar þessar hefðu sparnað í för með sér.