10.10.1983
Sameinað þing: 1. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti

Aldursforseti (Ólafur Jóhannesson):

Þingmönnum hefur nú verið skipað í kjördeildir og munu þær skipta með sér verkum í samræmi við ákvæði þingskapa, þannig að 1. deild fær 2. deild, 2. deild fær 3. deild og 3. deild fær 1. deild kjörbréf þeirra þm. sem eru í hverri þeirra fyrir sig.