10.05.1984
Neðri deild: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5697 í B-deild Alþingistíðinda. (5010)

354. mál, landflutningasjóður

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það hefur komið fram till. um að þessu máli verði vísað til 2. umr. Þetta mál er flutt af nefnd og af nefnd sem eðlilega mundi fjalla um þetta málefni. Ég held að ekki sé óeðlilegt að við þeirri beiðni verði orðið sem hv. frsm. beindi hér til deildarinnar um það að málinu verði aðeins vísað til 2. umr. án þess að það fari í nefnd. Ég ber þá fyrst upp að þessu máli verði vísað til 2. umr.