11.05.1984
Efri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5707 í B-deild Alþingistíðinda. (5027)

305. mál, umboðsþóknun vegna gjaldeyrisviðskipta

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta mál. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt en minni hl. mun gera grein fyrir sínu áliti væntanlega. Í meiri hl. eru Valdimar Indriðason, Tómas Árnason, Lárus Jónsson og Eyjólfur Konráð Jónsson.