11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5786 í B-deild Alþingistíðinda. (5101)

240. mál, ábyrgð á láni fyrir Arnarflug

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þetta mjög. Heldur þóttu mér síðustu orð síðasta ræðumanns hitta fyrir neðan beltisstað. Hv. þm. er vel kunnugt um að það var enginn þrýstingur af hálfu samgrh.ríkisstj. í sambandi við kaup Arnarflugs á Iscargo. Ég vil láta það koma hér greinilega fram.