14.05.1984
Efri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5793 í B-deild Alþingistíðinda. (5129)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Tómas Árnason,

4. þm. Austurl.“

Jón Kristjánsson hefur áður átt sæti á Alþingi sem varamaður og því hefur kjörbréf hans verið rannsakað áður. Hann er hér með boðinn velkominn til starfa.