14.05.1984
Neðri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5834 í B-deild Alþingistíðinda. (5186)

311. mál, fjölbrautaskólar

Frsm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég tók það fram um síðasta mál að brtt. væri flutt á sérstöku þskj. um að námskeiðsgjöld skuli vera hin sömu á öllu landinu. Ég gerði skilmerkilega grein fyrir þeirri brtt. og sagði að hún væri borin fram af þeim sökum að við teldum að aðstaða fólks til menntunar ætti að vera sem jöfnust eftir því sem unnt væri. Ég sagði þegar ég gerði grein fyrir þessu máli að það væri af sama toga og hið fyrra. Ég biðst afsökunar á því að mér láðist að geta um efni brtt., en hún er, eins og ég sagði, af sama toga og málið sömu ættar.