16.05.1984
Efri deild: 100. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5983 í B-deild Alþingistíðinda. (5307)

363. mál, kjaradómur í vinnudeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugleiða

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Félag ísl. atvinnuflugmanna hefur í vor tvívegis boðað til vinnustöðvunar þeirra félagsmanna sinna sem starfa hjá Flugleiðum. Fyrri vinnustöðvunin átti að vera 11. og 12. maí en var aflýst með tæplega sólarhrings fyrirvara og þá jafnharðan boðað til nýrrar stöðvunar til vara dagana 18., 19. og 20. maí. Það er ljóst að slík verkfallsboðun ein sér hefur í för með sér víðtækt og varanlegt tjón í atvinnugrein sem er jafnviðkvæm og flug og ferðamannaþjónusta. Endurteknar verkfallsboðanir fámennra hópa eru til þess fallnar að valda þúsundum ferðamanna erfiðleikum, skerða nauðsynlegar samgöngur eyþjóðar við önnur lönd og ógna atvinnuhagsmunum þeirra starfsmanna er byggja afkomu sína á þjónustu við ferðamann.

Af fyrri reynslu er ljóst að stöðvun stærsta hluta farþegaflugsins eða endurteknar hótanir þar um geta valdið því að fjöldi ferðamanna, sem hafa ætlað að ferðast til Íslands á sumri komanda breytir sínum áætlunum. Slíkt ástand leiðir einnig af sér verulega skert traust á áætlunarflugi okkar og stefnir í voða árangri af víðtæku erlendu kynningarstarfi á Íslandi sem ferðamannatandi. Vinnudeila Flugleiða og Félags ísl. atvinnuflugmanna teflir því mun víðtækari hagsmunum í tvísýnu en þeirra sem í deilu eiga, þ. á m. hagsmunum þeirra þúsunda launþega sem með einum eða öðrum hætti vinna við ferðamannaþjónustu hér á landi.

Vinnudeila þessi hefur nú um hríð verið í höndum ríkissáttasemjara sem haldið hefur nokkra fundi með deiluaðilum en án árangurs. Í símtali við ríkissáttasemjara í morgun taldi hann mjög ólíklegt og raunar útilokað að samkomulag næðist með deiluaðilum eins og málin standa núna. Það er stefna ríkisstj. að samningar stéttarfélaga séu í öllum meginatriðum innan þess ramma sem AST og VSÍ hafa samið um. Nú er það hins vegar ljóst að kröfur FÍA liggja langt utan þess ramma. Til þess að fyrirbyggja að FÍA geti með verkföllum knúið fram óraunhæfa kröfugerð og til verndar mikilvægum hagsmunum fyrirtækja og starfsmanna á sviði ferðamannaþjónustu er þetta frv. flutt.

Flugmenn Flugleiða hafa lagt fram kröfur um verulegar launahækkanir og aðrar kjarabætur er ganga langt umfram það sem að undanförnu hefur verið samið um við aðrar starfsstéttir hér á landi. Flugleiðir hafa samþykkt að bjóða flugmönnum hliðstæðar kjarabætur og felast í hinum almenna samningi ASÍ og VSÍ. Þessu hafa flugmenn hafnað og boðað til verkfalla eins og ég gat um hér áðan. Með slíkum verkföllum er ekki aðeins stefnt í hættu íslenskum flugrekstri, sem hefur átt í verulegum fjárhagserfiðleikum undanfarin ár, heldur einnig afkomu almennrar ferðaþjónustu hér á landi.

Það er ljóst að erlendir ferðamenn, sem íhugað hafa ferðir til Íslands á komandi sumri, munu leita á aðrar slóðir ef þeir reka sig á truflanir í flugsamgöngum við landið. Áhrif slíkra truflana ná í reynd ekki aðeins til komandi sumars heldur einnig til hugsanlegra ferða síðari ár. Yfirgnæfandi meiri hluti erlendra ferðamanna, sem koma til Íslands, kemur með flugvélum. Á s. l. ári er talið að um 84% allra erlendra ferðamanna til Íslands hafi komið með flugvélum Flugleiða.

Í íslenskum flugrekstri er mikill árstíðamunur sem jafnframt hefur afgerandi áhrif á fjárhagsafkomu flugfélaganna. Þannig er yfirleitt tap á rekstri Flugleiða sjö mánuði ársins. Þetta tap þarf að vinna upp yfir fimm mánuði sumarsins, maí-sept. Allar truflanir í rekstri, sem koma upp á þessum tíma, skerða því möguleika félagsins að halda uppi eðlilegri starfsemi allt árið, þ. á m. að geta haldið í starfi öllu sérþjálfuðu starfsliði sínu yfir vetrartímabilið.

Á undanförnum árum hafa verið gífurlegir fjárhagserfiðleikar í Norður-Atlantshafsfluginu, m. a. vegna óheftrar samkeppni u. þ. b. 40 áætlunarflugfélaga og fjölda leiguflugfélaga sem bjóða þjónustu á þeim markaði. Flugleiðir búa hér við lakari kost vegna millilendinganna á Íslandi sem m. a. lengja flugleiðina á milli Lúxemborgar og Bandaríkjanna um ca. 10% borið saman við beint flug samkeppnisfélaganna. Með hliðsjón af þjóðhagslegu mikilvægi þessarar starfsemi hafa stjórnvöld í Lúxemborg og á Íslandi veitt félaginu fjárhagslegan stuðning á undanförnum árum sem m. a. hefur falist í eftirgjöf lendingargjalda Norður-Atlantshafsflugsins í Lúxemborg og Keflavík.

Vegna væntanlegrar gildistöku nýrra reglna í Bandaríkjunum um næstu áramót, er fela í sér kvöð um endurnýjun eða breytingu á núverandi flugvélakosti Flugleiða, eru fram undan hjá félaginu mjög fjárfrekar aðgerðir. Ef félagið á enn að geta haldið sínum hlut á Norður-Atlantshafsleiðinni, eða jafnvel aukið hann, ber brýna nauðsyn til að starfsemin geti haldið áfram óskert og farþegar glati ekki tiltrú sinni til íslensks áætlunarflugs.

Hjá Flugleiðum eru nú starfandi 118 flugmenn en samtals eru hjá félaginu um 1400 starfsmenn. Flugmenn eru því um 8% starfsmanna sem geta með verkfalli sínu stöðvað allt flug á þess vegum auk þess sem afkoma almennrar ferðaþjónustu er stefnt í hættu. Með tilliti til þess hversu íslenskt þjóðlíf er háð flugsamgöngum geta stjórnvöld ekki látið það afskiptalaust er tiltölulega litlir starfshópar lama slíka starfsemi með verkfalli sem ætlað er að þrýsta á samþykkt krafna er ná langt út fyrir það sem aðrir þegnar landsins hafa þegar samið um.

Þetta frv. gerir ráð fyrir því að Hæstiréttur tilnefni þrjá menn í kjaradóm sem skal fyrir 15. júní n. k. ákveða kaup og kjör þeirra félagsmanna FÍA sem starfa hjá Flugleiðum. Þá er enn fremur ákvæði um að lögin öðlist þegar gildi og gildi til 31. des. á þessu ári. Úrskurður kjaradóms skv. 1. gr. gildir til sama tíma nema nýir samningar hafi áður verið gerðir á milli aðila. Hér er því ekki verið að afnema verkfallsrétt heldur fyrst og fremst verið að tryggja að þessari starfsemi verði haldið uppi nú yfir sumarið eða hina svokölluðu sumarvertíð ferðamálanna. Ríkisstj. taldi brýna nauðsyn bera til þess að flytja þetta frv. til þess að ekki komi til verkfalla, sem geta leitt af sér að þúsundir ferðamanna hefðu afpantað miða sína hjá Flugleiðum, en það hefði getað valdið félaginu stórkostlegu tjóni. Og ekki eingöngu félaginu heldur öllum starfsmönnum, þar með töldum meðlimum félags atvinnuflugmanna. Því er þetta frv. flutt.

Virðulegi forseti. Samgn. Nd., sem hélt fund um málið, lagði til að þetta frv. yrði samþ. óbreytt að öðru leyti en því að heiti þess yrði breytt. Það heitir því nú skv. afgreiðslu Nd.: Frv. til l. um kjaradóm í vinnudeilu Félags ísl. atvinnuflugmanna og Flugleiða. Eftir því sem ég best veit þá vann samgn. þessarar hv. deildar með n. í Nd. til þess að hraða afgreiðslu málsins en formsins vegna legg ég til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. samgn. Ég treysti því að frv. fái skjóta afgreiðslu því ekki er nema rúmur sólarhringur til verkfallsaðgerða.