16.05.1984
Efri deild: 100. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5988 í B-deild Alþingistíðinda. (5315)
252. mál, fjarskipti
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Hér er til umr. frv. til laga um fjarskipti. Í athugasemdum við lagafrv. segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Höfuðbreyting á frv. fjarskiptanefndarinnar frá núgildandi löggjöf er fólgin í því að fella niður einkarétt ríkisins, þ. e. Póst- og símamálastofnunarinnar, til að flytja inn og versla með notendabúnað vegna fjarskipta. Hann er samkvæmt 3. gr. í frv. nefndarinnar afnuminn.
Póst- og símamálastofnunin má þó að sjálfsögðu flytja inn og versla með notendabúnað í samkeppni við þá aðila sem vilja sinna þeim viðskiptum. Hins vegar verður samkvæmt ákvæðum frv. hver innflytjandi notendabúnaðar, sem tengja á við kerfi ríkisins, að tryggja sér yfirlýsingu Póst- og símamálastofnunarinnar um að hver og ein tegund notendabúnaðar eða hluti hans uppfylli þær kröfur sem gilda um notendabúnað á hverjum tíma.“
Þrátt fyrir þessa rýmkun á einokun Póst- og símamálastofnunarinnar er samt sem áður um óeðlileg forréttindi stofnunarinnar að ræða sem felast í því að eftir sem áður er Póst- og símamálastofnuninni einnig falið að löggilda hér á landi þann búnað sem nota má til tengingar við dreifikerfi Pósts og síma. Það getur ekki samræmst eðlilegri samkeppnisaðstöðu að annar samkeppnisaðilinn veiti leyfi til sölu á sama varningi og hann flytur inn og setur sjálfur. Þessi sjónarmið komu fram í flestöllum umsögnum sem n. bárust. Ég ætla að vitna hér í eina þeirra um þetta tiltekna efni frá Verslunarráði Íslands, en þar segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Í 3. gr. frv. er gert ráð fyrir að einkaréttur ríkisins til sölu á notendabúnaði sé afnuminn. Þar með yrðu tekin upp viðskipti með þessar vörur í frjálsri samkeppni sem leiða mundi af sér fjölbreyttara framboð og lægra verð. En í þessari grein er Pósti og síma þó jafnframt gert skylt að hafa ætíð til sölu allan almennan notendabúnað í samkeppni við einkaaðila. Enn fremur er Pósti og síma ætlað það hlutverk að gefa út viðurkenningar á þeim búnaði sem einkaaðilar flytja inn eða framleiða. Með þessu gefst Pósti og síma kostur á upplýsingum með góðum fyrirvara um allar nýjungar sem samkeppnisveitendur ætla að setja á markaðinn og getur brugðist við samkvæmt því.“
Í athugasemdum Póst- og símamálastofnunar við fyrrgreinda umsögn segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Sala notendabúnaðar hjá Pósti og síma hefur ekki verið veigamikill þáttur í starfseminni og leggur stofnunin því ekki höfuðáherslu á að halda þessari starfsemi áfram.“
Það er sem sagt ekki stofnunin sem leggur á það megináherslu að halda þessari sölu áfram á notendabúnaði. Því legg ég til að ákvæði 5. mgr. falli út úr 3. gr. laganna með brtt. á þskj. 943 og orðist mgr. svo: „Póst- og símamálastofnunin skal ekki annast sölu á almennum notendabúnaði.“