16.05.1984
Neðri deild: 91. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6019 í B-deild Alþingistíðinda. (5386)

363. mál, kjaradómur í vinnudeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugleiða

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Alþfl. mun greiða fyrir því að þetta mál fái eins skjóta afgreiðslu og mögulegt er hér í þinginu. Öllum er vitaskuld ljóst að aðgerðir af þessu tagi eru neyðarbrauð, en menn verða stundum að éta það brauð. Við munum skoða þetta mál í nefnd og áskilja okkur rétt til að skila endanlegri afstöðu eftir að upplýsingar hafa komið fram í nefndinni.