16.05.1984
Neðri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6035 í B-deild Alþingistíðinda. (5409)
363. mál, kjaradómur í vinnudeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Flugleiða
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég vil aðeins út af orðum hv. 3. þm. Reykv. taka fram að þetta frv. er flutt sem algerlega sjálfstætt mál sem brýn nauðsyn vegna þess ástands sem skapast hefur. Engin áform eru uppi, engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingu á vinnulöggjöfinni og það mál hefur ekki verið rætt lengi í ríkisstj. Ég er þeirrar skoðunar að verði breyting gerð á vinnulöggjöfinni eigi að hafa um það mjög nána samvinnu og samstarf en það er ekkert á dagskrá í sambandi við þetta mál á einn eða annan hátt.