16.05.1984
Neðri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6038 í B-deild Alþingistíðinda. (5418)

327. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):

Á þskj. 881 er prentað nál. frá meiri hl. iðnn. um stofnun og rekstur Iðnaðarbanka Íslands. Nefndin hefur rætt þetta mál en komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt. Að meiri hl. standa þeir sömu iðnnm. sem stóðu að nál. um sölu hlutabréfa í Iðnaðarbankanum, þ. e. Páll Pétursson, Friðrik Sophusson, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Ingvar Gíslason og Gunnar G. Schram.

Þetta mál er fylgifrv. og leiðir af sölu hlutabréfa í Iðnaðarbankanum og varðar stjórn bankans.