16.05.1984
Neðri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6038 í B-deild Alþingistíðinda. (5419)

327. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Frsm. minni hl. (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Á þskj. 843 er nál. minni hl. iðnn., sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Frv. þetta tengist frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja hlutabréf ríkissjóðs í Iðnaðarbanka Íslands. Undirrituð eru andvíg þeirri sölu á hlut ríkisins í bankanum og því einnig mótfallin þeirri breytingu á lögum um bankann sem felst í þessu frv. og leggja til að það verði fellt.“

Undir þetta nál. ritar auk mín hv. þm. Hjörleifur Guttormsson.