16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6077 í B-deild Alþingistíðinda. (5490)
318. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um breyt. á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Frv. nær samhljóða þessu var lagt fyrir síðasta þing en hlaut eigi afgreiðslu, en það mun hafa orðið samkomulag milli forvera míns í starfi, hæstv. fyrrv. fjmrh., og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Bandalags háskólamanna að nokkrar breytingar yrðu gerðar á lögum um lífeyrissjóðinn þótt ljóst sé að brýn nauðsyn sé að endurskoða lögin í heild sinni.
Frv. það sem hæstv. fráfarandi fjmrh. lagði fram var samið af stjórn lífeyrissjóðsins, en í þeirri stjórn sitja fulltrúar fjmrh. og launþegasamtakanna.
Frv. þetta hefur, eins og það sem ég mælti fyrir áðan, hlotið hefðbundna meðferð í hv. Ed. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 854 mælir hv. fjh.- og viðskn. Ed. einróma með samþykkt þessa frv. óbreyttu.
Ég vil leyfa mér að gera það að tillögu minni að frv. verði að þessum umr. loknum vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.