17.05.1984
Efri deild: 104. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6159 í B-deild Alþingistíðinda. (5545)

328. mál, sala hlutabréfa ríkissjóðs í Iðnaðarbanka Íslands

Frsm. meiri hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Hv. iðnn. hefur fjallað um frv. það sem hér er til umr. en komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu. Meiri hl. n., sem ég mæli fyrir, leggur til að frv. verði samþykkt.