17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6185 í B-deild Alþingistíðinda. (5607)

155. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Vegna athugasemdar hv. 3. þm. Vestf. vil ég taka fram að ég geng út frá að dagskrá 96. fundar hafi verið ákveðin í samráði við aðalforseta þessarar deildar. Ég skal vissulega koma athugasemd hv. 3. þm. Vestf. á framfæri við aðalforseta deildarinnar. Næstur á mælendaskrá í því máli sem hér er á dagskrá, kosningar til Alþingis, er hv. 4. landsk. þm.