17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6209 í B-deild Alþingistíðinda. (5619)
Um þingsköp
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Ég vil aðeins benda á það að ef á að halda fast við þetta að ósk þriggja flokksformanna þá segir það sig sjálft að þessir ágætu flokksformenn verða að gera svo vel að vera viðstaddir. Hvernig geta mennirnir krafist þess að við séum að þusa hér yfir tómum stólum. Og hvar eru þessir menn? Svona mikilvægt mál verður ekki afgreitt meðan menn eru einhvers staðar annars staðar úti í bæ eða heima hjá sér eða annars staðar. Þeir verða að gera svo vel að vera hér og það er alveg lágmarkskrafa að þessir ágætu herrar sitji hér yfir þessari umr. Ég óska eftir því við hæstv. forseta að ef hann ætlar að halda þessum umr. áfram geri hann svo vel og kalli á þessa hv. þrjá flokksformenn.