17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6212 í B-deild Alþingistíðinda. (5624)
Um þingsköp
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Mér þykir rétt að ég geri grein fyrir þeim fundum sem verið hafa undanfarnar vikur um þinglokin. Ég hef sjálfur átt, hygg ég, þrjá ef ekki fjóra fundi með formönnum þingflokka og forsetum þingsins. Ég gerði grein fyrir því á fyrsta fundi, líklega fyrir svona þremur vikum eða meira, þremur fjórum vikum, að það væri tillaga ríkisstj. að þingi lyki næst komandi laugardag, 19. maí. Ég verða að segja að þeirri tillögu var vel tekið og ekki hefur einn einasti formaður þingflokks andmælt. Kom fram eindreginn vilji, vil ég segja, hjá þeim sem þarna hafa mætt að vinna þannig á þinginu að þetta tækist. Síðasti fundurinn var kl. hálf tvö í dag. Á þeim fundi kom fram ein athugasemd við að halda kvöldfund í dag, frá formanni Alþfl. Það var sú eina, en hann tók jafnframt fram að hann mundi ekki mótmæla því þótt kvöldfundur yrði. Einnig kom fram á þessum fundum sú skoðun að unnt ætti að vera að ljúka þinginu næst komandi laugardag. Ég hef hins vegar fyrir a. m. k. viku boðið upp á að við hefðum mánudaginn upp á að hlaupa.
Þannig hefur verið ákveðinn vilji til að vinna eins og ríkisstj. hefur lagt til. Hitt er svo alveg ljóst að ef einstakir þm. í einhverjum þingflokkum virða ekki þetta samkomulag og halda uppi eins löngum tölum og hefur verið í kvöld, þá mun þetta ekki takast þrátt fyrir góðan vilja forustumanna þingflokkanna.
Ég vil einnig vekja athygli á því að þegar á fyrsta fundinum var tekin saman skrá yfir þau þingmál sem ríkisstj. vildi gjarnan að færu í gegn. Ég hygg að það hafi nú alltaf verið svo um slíkar skrár að eitthvað hafi dottið út af. T. d. hafa stjórnarandstæðingar á okkar fundum talið að einstök mál gætu ekki farið í gegn og við höfum þá yfirleitt sætt okkur við það. Ég nefni t. d. útvarpslögin, sem var gerð athugasemd við og talið að ekki mundi kleift að fá í gegn. Við sættum okkur við það. Þannig hefur þetta verið gert með samkomulagi. Stjórnarandstaðan hefur lagt fram mjög hóflegan lista yfir mál sem við viljum einnig stuðla að að fái framgang. Ég hef því ekki kynnst öðru þingi þar sem betri samstaða hefur verið með þeim mönnum sem hafa lagt á ráðin um hvernig ljúka eigi þingi fyrir ákveðinn tíma.
Ég andmæli því að ekki hafi stundum fyrr verið unnið á kvöldin. Ég minnist þess, þessi ár sem ég hef verið hér, að í lok þings hefur verið unnið oft kvöld eftir kvöld, oft töluvert lengur en nú er, og vel má fletta því upp.
Ég veit ekki hvort það gæti orðið til að leysa þetta mál ef við settumst niður nokkrir saman núna, ég er tilbúinn til þess, með formönnum þingflokka, og við athuguðum hvort hægt væri að komast að samkomulagi um að ljúka fljótlega á meðan einhverjar umr. halda áfram, og við skulum vera fljótir að því, en ég tek fram að það er allt háð því að samkomulag náist innan viðkomandi þingflokka við einstaka þm.