18.05.1984
Efri deild: 105. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6218 í B-deild Alþingistíðinda. (5639)
Um þingsköp
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Forseti er sannfærður um að hv. þdm., sem áttu þessar þakkir, taka við þeim með þökkum.
Það væri synd að segja að það sé ekki kominn vorhugur í þingheim hér í hv. Ed., enda fer senn að líða að því að kúnum verði hleypt út. Hv. 11. landsk. þm. hefur beðið um orðið, væntanlega ekki í tilefni af þessum orðum, og ætlar að taka til máls um þingsköp.