18.05.1984
Efri deild: 105. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6219 í B-deild Alþingistíðinda. (5645)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Valdimar Indriðason:

Virðulegi forseti. Í umræðunum sem hér fóru fram í gær um þetta mál gat ég þess að 26. gr. frv. færi mjög fyrir brjóstið á mér vegna þeirrar tilkynningar sem komin var frá Seðlabanka um endurkaup á afurðavíxlum, en í trausti þess að ríkisstj. vinni að breytingu að þeim málum og beiti af hógværð a. m. k. 26. gr. segi ég já.