18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6234 í B-deild Alþingistíðinda. (5681)

Um þingsköp

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Ég tek undir þau orð hv. þm. að það er leitt ef þetta mál kemst ekki til umr. fyrir fundarlok í dag, en við erum bara alltaf að tefja fundinn með umr. um þingsköp sem minnka sífellt líkurnar á því að okkur takist að ræða málið. Ef okkur tekst það ekki vil ég enn einu sinni ítreka að við tökum málið upp í fyrramálið ef okkur tekst ekki að ljúka umr. í dag.