19.05.1984
Sameinað þing: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6373 í B-deild Alþingistíðinda. (5884)

291. mál, varnir vegna Skeiðarárhlaupa

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft till. til þál. um varnir gegn hættu á Skeiðarárhlaupum til athugunar. N. leggur einróma til að till. verði vísað til ríkisstj. til nánari umfjöllunar og afgreiðslu eins og segir í nál.