21.05.1984
Efri deild: 110. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6436 í B-deild Alþingistíðinda. (5961)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Hér er um mál að ræða, virðulegi forseti, sem er að koma hér til 1. umr. Ef hæstv. ráðh. hefur ekki meiri áhuga á að fylgja málinu eftir en svo, að hann sjái sér fært að vera hér í deild þegar það kemur til 1. umr. þá sé ég enga ástæðu til að málið sé yfirleitt tekið hér á dagskrá. Ég vil bara lýsa þeirri skoðun minni.