21.05.1984
Neðri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6443 í B-deild Alþingistíðinda. (5980)

Um þingsköp

Þorsteinn Pálsson:

Herra forseti. Hv. 3. þm. Vestf. hefur óskað eftir því að fá svör við því hvort kallaður verði saman fundur í félmn. Sú ósk hefur verið borin hér fram af hans hálfu af alkunnu yfirlætisleysi. Að sjálfsögðu verður orðið við hógværri ósk sem þessari og til fundar boðað við fyrsta hentuga tækifæri.