21.05.1984
Neðri deild: 102. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6508 í B-deild Alþingistíðinda. (6017)

37. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég beindi ítrekað spurningu til hæstv. fjmrh. og ég trúi því ekki að hæstv. fjmrh. ætli að láta þessari umr. ljúka án þess að svara þeirri spurningu sem ég hef hér beint til hans, sem ég veit að ég þarf ekki að ítreka. Ég skora á hæstv. fjmrh. að koma hér upp og segja afstöðu sína í þessu máli. Ég vænti stuðnings hans í þessu máli eins og ég hafði á síðasta þingi og ég beini því eindregið til hans að hann komi hér upp og lofi okkur að heyra núna álit sitt á þessu máli, hvort hann muni styðja framgang þess hér á hv. Alþingi.