22.05.1984
Sameinað þing: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6567 í B-deild Alþingistíðinda. (6173)

368. mál, afnám tekjuskatts af almennum launatekjum

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég vil þakka þá víðtæku samstöðu sem náðst hefur um þetta að mínum dómi mjög mikilvæga málefni sem hefur verið baráttumál okkar Alþfl.-manna um langt árabil. Ég færi allshn. þakkir fyrir störf hennar og læt í ljós ánægju okkar Alþfl.-manna.