21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (816)

45. mál, Norræni fjárfestingarbankinn

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Hv. 3. þm. Reykv. beindi tveimur spurningum til mín, þeirri fyrri varðandi Norræna fjárfestingabankann, og hæstv. viðskrh. hefur svarað þeirri spurningu, og þeirri síðari um framlag til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ef ég tók rétt eftir — ég var nú inni í hliðarherbergi þegar spurningin kom fram. Hæstv. viðskrh. hefur líka svarað því. En til viðbótar vil ég segja að ég hef fengið bréflega staðfestingu frá Seðlabankastjórn um að enginn kostnaður mun falla á ríkissjóð, hvorki vegna framlags né á annan hátt, vegna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.