21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (836)

Um þingsköp

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það hefur komið fram mjög ákveðin beiðni af hálfu hæstv. viðskrh. um að 3. umr. um þetta mál geti farið fram nú í dag og vænti ég þess að hv. þdm. hafi ekki á móti því. Þetta mál hefur lengi legið hér fyrir deildinni og hæstv. viðskrh. tjáði mér að það væri mikil nauðsyn á því að þessu máli yrði hraðað í meðförum Alþingis. Ég vænti þess að það verði ekki neinn sem finnur að þeirri málsmeðferð.