22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (862)

80. mál, kostnaður af kynningu á efnahagsaðgerðum Sjálfsæðisflokks og Framsóknarflokks

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Landhelgisgæsla og flugmálastjórn eru mikið á ferðinni. Ég hygg að gæslan fljúgi nokkurn veginn daglega víða yfir landið og um miðin. Ég tel sjálfsagt að stjórnvöld noti sér þær ferðir til sparnaðar ef þar fellur saman sú ferð sem ráðh. og fleiri þurfa að fara í á vegum opinberra aðila og ferðir slíkra eins og Landhelgisgæslu og flugmálastjórnar. Og svo var í þessu sambandi í nokkrum tilfellum.