24.11.1983
Sameinað þing: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1140 í B-deild Alþingistíðinda. (985)

372. mál, bráðabirgðasamningur milli Íslands og SwissAluminium

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Mig langar að víkja því til hæstv. forseta hvort honum þykir ekki ástæða til að fresta þessari umr. og ljúka henni ekki nú, með beinni vísun til þeirra svikabrigsla og landráðabrigsla sem hæstv. forsrh. hefur nú legið undir í fjarveru hans af hálfu hv. síðasta ræðumanns. (Gripið fram í: Og fleiri ráðh.) Og fleiri ráðh. að vísu.