04.12.1984
Sameinað þing: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)
115. mál, leiðsögukennarar
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Vegna fsp. hv. 3. landsk. þm. vil ég taka fram og ítreka það sem hún nefndi, að kveðið væri á um leiðsögukennara í grunnskólalögum og lögum um Kennaraháskóla Íslands. Þetta ákvæði hefur ekki komist til framkvæmda, aðallega af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi er ákvæðið erfitt í framkvæmd með þeim hætti sem grunnskólalög mæla fyrir um, en þar segir:
„Fræðsluráð skal skipuleggja viðræðufundi fyrir nýja kennara í samráði við Kennaraháskóla Íslands, hafa umsjón með þeim og setja þeim leiðsögukennara að fengnum tillögum hlutaðeigandi skólastjóra.“
Í sumum tilvikum eru mjög fáir fundir í fræðsluráðum umdæmanna auk þess sem fræðsluráðsmenn koma víða að. Hafa þau því enga möguleika til að vinna verkefni eins og hér um ræðir. Þess vegna væri nauðsynlegt að breyta lagaákvæðinu og fela verkefnið öðrum, eins og verið hefur í reynd. Núna hlýtur verkefnið að vera á höndum skólastjóra, yfirkennara og fræðslustjóra og námsstjóra að því er einstakar greinar varðar. En námsstjórarnir munu nú í ríkara mæli en áður geta komið við ferðalögum út í umdæmi, þar sem þeir eru lausir við námsefnisgerðina sem þeir hafa haft með höndum árum saman, en hún hefur eins og kunnugt er verið flutt í Námsgagnastofnun. Þess vegna geta námsstjórarnir, sem í menntmrn. vinna, einbeitt sér meira að leiðbeiningum úti í skólunum sjálfum.
Síðari ástæðan fyrir því að þetta ákvæði hefur ekki komist til framkvæmda verður skýrð með því að segja frá því að þrátt fyrir þessi vandkvæði var lítillega byrjað á þessu árið 1978 á Akureyri. Árið 1979 ákvað ríkisstj. vissar aðhaldsaðgerðir í peningamálum sem m.a. leiddu til þess að nokkur samdráttur varð á fjárframlögum til grunnskóla. Þessi starfsemi var þá felld niður og því hefur ekki verið breytt síðan. Ég vona að í þessu tvennu felist svarið við fsp.