06.12.1984
Sameinað þing: 30. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)
Umræður utan dagskrár
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Það er bersýnilegt á þeim orðum sem hv. 5. þm. Austurl. las upp úr ræðu sinni áðan að hæstv. utanrrh. hefur tekið rangt eftir því sem þm. sagði. Þess vegna held ég að það sé góð regla fyrir ráðh. og aðra að leggja sig fram um að taka rétt eftir áður en þeir fara að bera landráðabrigsl á einstaka alþm.