11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1768 í B-deild Alþingistíðinda. (1261)
161. mál, atvinnumál fatlaðra
Helgi Seljan:
Herra forseti. Ég fagna þessari fyrirspurn og ég fagna framtaki hæstv. ráðh. og hans rn. um að fram fari ítarleg könnun varðandi atvinnumál fatlaðra. Ég held að það sé full ástæða til þess og síðan beri menn saman bækur sínar á ráðstefnu um þessi mál því að auk húsnæðismálanna hjá fötluðum er það staðreynd að atvinnumálin brenna hvað heitast og þyngst á þeim, fyrir utan aðra aðstöðu sem snertir bein kjör þeirra.
Ég kom nálægt þessu að nokkru leyti þegar ég sat í endurhæfingarráði á sínum tíma og þar kom glögglega í ljós, eins og hv. fyrirspyrjandi vék hér réttilega að, að því miður bar einkareksturinn af um það að veita fötluðum mönnum vinnu, miðað við hið opinbera. Ég viðurkenni að margt hefði mátt betur gera á meðan endurhæfingarráðið starfaði sem slíkt og stóð fyrir í samvinnu við Reykjavíkurborg ákveðinni vinnumiðlun á þessu svæði. Ég bendi á það núna í þessum umr., þó að ég hafi lagt fram um það fsp. sérstaklega til hæstv. ráðh., úr því að það kemur svona beint upp í hendurnar á manni, að núna, á þessu stóra svæði, aðalatvinnusvæðinu og þar sem flestir fatlaðir eru, vinna líklega í raun færri að atvinnuleit og vinnumiðlun en var jafnvel á dögum endurhæfingarráðsins, og þurfti þó sannarlega þá betur að gera. Ég sé það líka að samkvæmt fjárlögum eru til svæðisstjórnar Reykjavíkursvæðisins aðeins ætlaðar, á þessu aðalatvinnusvæði, 436 þús. kr. til atvinnuleitar og vinnumiðlunar og það eru 85% af heildarupphæðinni því 15% koma frá Reykjavíkurborg.
Mér er tjáð að sótt hafi verið um 800 þús. og að nauðsynlegt sé að bæta þarna við starfskrafti ef vel á að vera, og jafnvel frekar tveim en einum, til þess að vinna að þessu verkefni.
Ég skal ekki fara nánar út í það hér, en vegna þess að fjárlagaafgreiðsla er alveg á næstunni vildi ég spyrja hæstv. ráðh. að því hvort það væri ekki ásetningur hans að reyna að fá fram breytingu á þessum lið í fjárlögunum, um atvinnumiðlun hér á þessu svæði, þannig að a.m.k. væri hægt að sjá til þess að tveir aðilar ynnu að þessu á vegum öryrkjadeildar Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar.