11.12.1984
Sameinað þing: 32. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (1299)

52. mál, lækkun húshitunarkostnaðar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er nú kominn sá tími sem við venjulega í síðasta falli slítum fundi. Það væri samt freistandi að halda honum eilítið áfram í því trausti að það takist að ljúka þessari umr. vegna þess að það er ekki víst að málinu verið komið til n. fyrir jólaleyfi ella. Hér er ekki verið að takmarka umr. Það er aðeins vakin athygli á hver staðan er.