12.12.1984
Neðri deild: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (1383)

189. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Eins og kunnugt er höfum við Alþb.- menn í þessari deild lagt fram till. um að tvöfalda þennan skatt vegna þess að við teljum að ríkissjóði veiti ekki af. Ég vona að hæstv. fjmrh. taki þeirri till. vel og þeim skilningi sem við þannig sýnum á stöðu ríkissjóðs. Við munum flytja þessa till. einnig sem brtt. við það frv. sem hér liggur fyrir. Ég vænti þess að hæstv. fjmrh. taki vel í þessa till. okkar Alþb.-manna. Með henni sýnum við raunhæfan skilning á þeim vanda sem hann á við að glíma.