13.12.1984
Sameinað þing: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1928 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)

1. mál, fjárlög 1985

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er dokað við til þess að það sé meiri hluti þm. á þingfundi. Það er meiri hl. þingmanna í þinghúsinu. Þeir eru ekki ámælisverðir sem eru mættir heldur hinir sem eru í húsinu og hirða ekki um að koma á fund. Það verður dokað við og þess freistað að þeir komi. (Gripið fram í: En ráðherrarnir?)