14.12.1984
Sameinað þing: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1988 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)

1. mál, fjárlög 1985

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég er alfarið á móti ríkisstyrk til blaða, en hins vegar tel ég undir mörgum kringumstæðum sjálfsagt og eðlilegt að ríkið kaupi blöð inn á ákveðnar stofnanir og því segi ég já.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 56 shlj. atkv.