14.12.1984
Neðri deild: 25. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)

187. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. það til l. um breyt. á lögum nr. 75 frá 14. sept. 1981, um tekju- og eignarskatt, með síðari breytingum, var lagt fram í Ed. og hefur hlotið eðlilega þingmeðferð þar.

Á seinni árum hefur skattlagning á tekjur manna sætt mikilli og vaxandi gagnrýni. Hefur sífellt borið meira á tillögum um verulega lækkun tekjuskatta eða afnám þeirra. Þessar almennu óvinsældir tekjuskattsins eiga sér eflaust margar skýringar.

Tekjuskatturinn, eins og aðrir beinir skattar, er ávallt sérgreindur og honum beint að tilteknum gjaldendum til greiðslu. Gjaldendur gera sér því mun betri grein fyrir hver skattbyrðin raunverulega er en gerist með óbeina skatta sem bæði leynast ósérgreindir í verði á vörum og þjónustu og falla þar að auki til greiðslu í fjölmörgum smáum greiðslum jafnóðum og stofnað er til útgjalda við vörukaup.

Önnur ástæða fyrir óvinsældum tekjuskattsins er sú að hann kemur nokkuð misjafnt niður á gjaldendum. Hefur í því sambandi bæði verið á það bent að skattalög sköpuðu mönnum í atvinnurekstri rýmri möguleika til frestunar á skattgreiðslum en launamönnum, en þó einkum að menn hefðu misgóða aðstöðu til ólöglegs undandráttar á tekjum frá skatti og að ýmsir þeir hópar sem besta aðstöðu hefðu í þeim efnum nýttu sér hana til hins ýtrasta.

Skattsvik eru óneitanlega mikið þjóðfélagsvandamál. Það dylst engum að þau eru útbreidd hér á landi og að mikið vantar á að skattasiðferði þjóðarinnar sé sem skyldi. Öllu erfiðara er þó að gera sér grein fyrir því tölulega hversu miklu fé er komið undan skatti. Er reyndar að störfum hópur sérfræðinga sem leitast við að leggja mat á þetta, en þennan starfshóp skipaði ég í haust í framhaldi af þál. þar að lútandi á síðasta vori. Meira máli skiptir þó í þessu sambandi að grípa til raunhæfra aðgerða til að draga úr skattsvikum. Þar skiptir hert skattaeftirlit langmestu máli og hafa nú þegar verið veittar stöðuheimildir fyrir 20 nýjum stöðum skattaeftirlitsmanna.

Þriðja gagnrýnisatriðið á tekjuskattinn er að óhófleg skattlagning dregur úr framtaki og vinnuvilja gjaldenda, en þessara áhrifa gætir lítt varðandi aðra skatta.

Sú vitneskja manna að upp undir 60% af viðbótartekjum þeirra muni renna til hins opinbera hlýtur að draga verulega úr áhuga þeirra fyrir að leggja á sig aukið erfiði við viðbótartekjuöflun.

Þessi atriði og mörg fleiri hafa leitt til þess að margir stjórnmálamenn hafa gerst talsmenn þess að lækka verulega eða afnema tekjuskatt a.m.k. sem skattstofn ríkissjóðs. Ég dreg í efa að slíkt hjal sé alvara þeirra manna sem annars eru meðmæltir auknum ríkisumsvifum og ríkisforsjá á sem flestum sviðum. Hvað okkur sjálfstæðismenn áhrærir er afnám tekjuskatts af almennum launatekjum hins vegar eðlilegur liður í þeirri grundvallarstefnu flokksins að færa aukið vald til einstaklinga og samtaka þeirra og afnema óþarfa íhlutun og afskipti ríkisvaldsins, jafnframt því sem framtak einstaklinga og uppbygging atvinnurekstrar verði örvuð m.a. með aðgerðum í skattamálum.

Á s.l. vori var samþykkt hér á Alþingi þáltill. um afnám tekjuskatts af almennum launatekjum í áföngum. Í framhaldi af þeirri samþykkt er í samkomulagi stjórnarflokkanna frá 7. sept. s.l. tekið upp ákvæði um að fyrsti áfangi þessa afnáms tekjuskatts skuli nema 600 millj. kr. og skuli hann koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 1985.

Í þessum áætlunum er ekki að því stefnt að tekjuskattur verði afnuminn með öllu. Áfram yrði tekjuskattur í einhverjum mæli lagður á þá sem best mega sín þannig að tekjuskattsgreiðslur þeirra standi undir kostnaði sem felst í greiðslu ríkissjóðs á álögðum útsvörum þeirra sem standa höllum fæti og útborgun á barnabótum til láglaunafólks. Hins vegar er þess ekki að vænta að ríkissjóður muni hafa nettótekjur af tekjuskattinum eftir að þessi breyting er komin til framkvæmda. Verður því samhliða hinum einstöku áföngum í afnámi tekjuskatts að laga aðra þætti ríkisfjármálanna að þessum breyttu aðstæðum. Að mínu mati verður það helst gert með minnkun ríkisútgjalda samfara minnkandi ríkisumsvifum og minnkandi afskiptum ríkisvaldsins.

Það frv. sem hér er til umr. er útfærsla á fyrsta áfanga afnáms tekjuskatts af almennum launatekjum. Með því er stefnt að skattalækkun hjá öllum gjaldendum tekjuskatts og að sú lækkun verði hlutfallslega mest hjá gjaldendum með lágar tekjur og tekjur í lágu meðaltali.

Annað meginstefnumið frv. er að draga úr þeim ójöfnuði sem ríkt hefur um skattlagningu hjóna með hliðstæðar tekjur eftir því hvernig tekjuöflun hefur skipst milli hjónanna. Í fjárlagafrv. er gengið út frá því að meðaltekjur á mann hækki um 22% milli áranna 1983 og 1984 og um 11.4% milli áranna 1984 og 1985. Í ljósi breyttra forsendna liggja nú fyrir nýjar áætlanir Þjóðhagsstofnunar um tekjuþróun og er þar gert ráð fyrir að meðalhækkun tekna verði svipuð milli áranna 1983–1984 og 1984–1985 eða því sem næst 25% í báðum tilvikum. Skattbyrðin 1985 yrði því sú sama og 1984 ef skattvísitala yrði hækkuð um 25%. Breytingar á fjárhæðum í lögum um tekju- og eignarskatt skv. þessu frv. eru að megninu til grundvallaðar á slíkri hækkun skattvísitölu.

Til að ná þeim markmiðum, er að ofan greinir, er þó vikið frá þessu að því er varðar brtt. í 3. og 4. gr. frv. varðandi skattstiga og persónuafslátt. Er þess þar fyrst og fremst að geta að öll skattahlutföll eru lækkuð, en þó mest hið fyrsta. Er gerð tillaga um að fyrsta skattþrepið verði 20% í stað 23% nú, annað þrep verði 31% í stað 32% nú og þriðja þrepið 44% í stað núgildandi 45%. Jafnframt er gerð tillaga um að skattþrep verði þrengd nokkuð, en það veldur því að heldur dregur úr skattalækkun hinna tekjuhærri og fjárhagslegt svigrúm skapast til að beina skattalækkunum einkum að hinum tekjulægstu.

Í annan stað er gerð tillaga um að ónýttur hluti neðsta skattþrepsins hjá hinu tekjulægra hjóna verði millifærður til hins makans, allt að 100 þús. kr., og lengist neðsta þrep tekjuhærri makans sem þessu nemur á kostnað miðþrepsins. Sú mismunun milli skattlagningar heimila með hliðstæðar tekjur sem viðgengst nú hefur verið mönnum nokkur þyrnir í augum. Er innbyggt í núgildandi skattkerfi hagræði fyrir þær fjölskyldur þar sem bæði hjónin afla tekna umfram þær fjölskyldur sem hafa aðeins eina fyrirvinnu. Skv. núgildandi lögum gæti sá munur sem er milli heildarskattlagningar hjóna, eftir því hvernig tekjuöflun skiptist á milli þeirra, mestur orðið 80 300 kr. við skattlagningu 1985. Með framangreindri tillögu er dregið úr þessum hámarksmismun.

Þrátt fyrir þessa lagfæringu er enn allnokkur munur á skattlagningu hjóna eftir skiptingu tekjuöflunar. Ég tel að nokkur munur sé mjög vel réttlætanlegur í þessum efnum. Það er augljóst mál að því getur fylgt kostnaður að bæði hjónin vinni úti, ekki síst ef börn eru á heimilinu. Er eðlilegt að tillit sé tekið til þessa kostnaðarauka við skattlagningu. Hitt er alltaf matsatriði hvaða fjárhæðir sé eðlilegt að miða við.

Frv. þetta leiðir til verulegrar lækkunar á tekjuskatti allra hópa gjaldenda. Nemur lækkun þessi frá 17.1 % að meðaltali hjá hjónum upp í 18.6% að meðaltali hjá einstæðum foreldrum. Meðaltalslækkun á álögðum tekjuskatti einhleypinga er þar á milli eða um 18.3%.

Eins og ég sagði hér að framan lækkar skattbyrði nær allra gjaldenda skv. till. frv. Sú lækkun er þó mismikil eftir tekjum gjaldenda. Sem hlutfall af tekjum er lækkunin þannig mest hjá hjónum með samanlagðar tekjur á bilinu 350–500 þús. kr. og lætur nærri að tekjuskattslækkun hjóna á þessu bili nemi að meðaltali 2% af tekjum ársins 1984. Hjá einhleypingum er lækkun skatta sem hlutfall af tekjum hæst á tekjubilinu 200–300 þús. kr. og er rúmlega 1% af tekjum ársins 1984 á þessu tekjubili.

Þar sem lagt er til að álagningarkerfi tekjuskatts verði endurskoðað með frv. þessu er gert ráð fyrir að skattvísitala fyrir árið 1985 verði ákveðin í fjárlagafrv. Af þessu leiðir nauðsyn til að breyta ákvæðum nokkurra laga til að hækka fjárhæðir í hlutfalli við verðlagsþróun milli ára. Er hér um að ræða lög um frádrátt frá tekjum manna vegna fjárfestingar í atvinnurekstri, lög um Framkvæmdasjóð aldraðra og lög um tekjustofna sveitarfélaga og hefur þegar verið mælt fyrir þeim frv. hér í þessari hv. deild nú á þessum síðustu dögum. Þá er gert ráð fyrir hinum sérstaka barnabótaauka sem þegar hefur verið afgreiddur til 2. umr. í þessari hv. deild.

Ég vil að lokum leggja áherslu á að brýna nauðsyn ber til að þetta frv. hljóti hraða meðferð í þinginu. Í því er kveðið á um ýmsa þætti sem nauðsynlega þurfa að liggja fyrir er kemur að framtalsskilum í byrjun næsta árs. Vegna þeirra breyttu forsendna er leiddu af nýgerðum kjarasamningum hefur þetta frv. orðið síðbúnara en æskilegt hefði verið, en ég treysti að sá tími sem til stefnu er verði vel nýttur og afgreiðslu þess verði lokið fyrir jólaleyfi.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.